Welcome to the Jungle
13.09.2007 13:17:44 / Ásta

Blessuð

Góðan Daginn!

Það er bara komin fimmtudagur. Þessi vika er búin að vera fljót að líða.

En já um helgina fórum við liðið á einu bestu tónleika sem ég hef farið á, þótt maður var einum of mikið hjá barnum og mistum af nokkrum lögum. En samt sem áður hefði ég ekki viljað missa alveg af tónleikanum. Kidda sat allan tímann í stúkunni og hafði góða sjón á þennan fáránlega flottan gaur. Hann er algjör snillingur á sviði og lagavölin hans voru engum til vonbrigðar. Ekki nóg með það þá er hann líka SJÚKLEGA FALLEGUR, massaður og með geðveika rödd. Snilli! Ég vona aællir sem fóru á tónleikana höfðu það jafn gaman og við!

Eftir tónleikana rölltum við heim til mín og ætluðum í bæinn, en svo varð bara party heima hjá mér og held að allir voru of fullið til að fara niðra bæ. Svaka stuð.

Svo er bara skólinn og læti í fullum gangi. Heimanámið að staplast hjá mér :(

:$En jájá. Svona er bara staðan hjá mér þessa dagana. Voðalega lítið að gerast hjá manni.:$

:evil: See ya

Kv. Ásta:^)  


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 16:35:28 / astaogkidda

Helluu people!!!

Hæ Hæ

komin timi á að ég skrifi eikkað....marr er svo upptekin i náminu skilllurru

EN VIÐ FÓRUM Á GEGGJAÐA TÓNLEIKA SÍÐASTA LAUGARDAG MEÐ CHRIS CORNELL

 

sem er by the way hot as SHIT.....8|

OG VIÐ FENGUM EIGINHANDAR'ARITUN ahahahahahahahahahh....


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 21:06:29 / Ásta

LOKSINS LOKSINS !!!!!!

Sæl og blessuð veriði!

Hérna er ný snildarsíða komin í gang með Kiddu og Ástu. Við ætlum að reyna að vera virkar að blogga og gefa ykkur gott sjónarhorn á lífi okkar fyrir þá sem hafa áhuga!

Margt hefur gerst og breyst frá því við blogguðum síðast á gömlu síðunni okkar.

 Hér er stutt yfirlit frá henni Ástu:

·         Ég hætti í MS í fyrrahaust og fór að vinna í Bakarameistaranum full time.

·         Er núna kominn í FÁ og er að fíla það

·         Er í sambúð með yndislega kærastanum mínum Benna. Við erum búin að vera saman í næstum 10 mánuði

·         Í sumar fórum við Benni, Numi, Jojo, Heiður og Silja til Köben í tvær vikur og skelltum okkur á ROSKILDE FESTIVAL sem var DRULLU gaman

·         Ég sótti um vinnu í dag hjá OLÍS og fer í prufu á fimmtudaginn

·         Var síðustu helgi í tvítugsafmæli hjá henni Silju babe sem var haldið á Prikinu

·         Halli elsti bróðir minn var að eignast sitt annað barn 08.08.2007 . Pínulítil stelpa sem varð skírð á laugardaginn FREYJA LÍF. Tek það fram að ég er guðmóðir hennar og hélt á henni alla skírnina sem var yndislegt J

Ég man ekki meir í bili, en það er fult meir! Svo þarf bara Kidda að koma með smá yfirlit og endilega setja nýjar myndir á síðunna J

 

Gaman að vera komin aftur í bloggið. Njótið vel.

Kv. Ásta !!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill